Ólafur Kári Júlíusson hefur starfað á sviði vinnusálfræði frá árinu 2010 þar sem verkefni hans hafa varðað m.a. vinnustaða-greiningar, stjórnendaráðgjöf og þjálfun, úttektir á eineltis og áreitnimálum á vinnustað, hönnun og innleiðing inngripa vegna streitutengdra vandamála á vinnustað og úrlausn ágreininga.
Þá hefur Ólafur haldið fjölmarga fyrirlestra og námskeið t.d.:
- Samskipti á vinnustað
- Streita og streitustjórnun
- Einelti og kynferðisleg áreitni
- Hamingja í lífi og starfi
- Ósýnilega vinnuuhverfið
- Markmið og markmiðasetning
- Andleg þrautseigja
- Vellíðan og viðhorf
Menntun:
BA Sálfræði – 2008 – Háskóli Íslands
M.Sc. Vinnusálfræði – Háskólinn í Sheffield